|
28. apríl |
Svíþjóð - Ísland
Búið
er að tilkynna hópinn sem mun taka þátt í vináttuleiknum
við Svía 4. maí n.k. Einn nýliði er í hópnum, Elín Anna
Steinarsdóttir, og Margrét Ólafsdóttir kemst ekki með
vegna meiðsla og kemur Laufey Jóhannesdóttir því í
staðinn, en hópurinn er eftirfarandi:
|
Þóra Björg
Helgadóttir KR
María Björg
Ágústsdóttir Stjarnan
Elín Anna Steinarsdóttir Breiðablik
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir Breiðablik
Guðlaug Jónsdóttir Bröndby
Erla Hendriksdóttir Frederiksberg
Katrín Jónsdóttir Kolbotn
Ásdís Þorgilsdóttir KR
Ásthildur Helgadóttir KR
Edda Garðarsdóttir KR
Elín Jóna Þorsteinsdóttir KR
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir KR
Olga Færseth KR
Ásgerður Ingibergsdóttir Valur
Laufey Jóhannesdóttir Valur
Rósa Júlía Steinþórsdóttir Valur |
 |
|
|
|
28. apríl |
Elfa og María út í nám
Elfa
Björg Erlingsdóttir og
María Björg
Ágústsdóttir eru á leiðinni til Bandaríkjanna í nám
næsta vetur. Elfa Björk er á leiðinni til Tennessee ríkis
þar sem hún mun stunda nám og spila fótbolta fyrir
University of Tennessee -
Chattanooga. María Björg fer til Boston, Massachusetts
þar sem hún mun, eins og Elfa, stunda nám og spila
fótbolta fyrir Harvard
University.
Elfa Björk fer út um miðjan ágúst en María Björg um miðjan
júní.
|
|
|
28. apríl |
Auður þjálfar U21 Auður
Skúladóttir hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari
Jörundar Áka Sveinssonar hjá U21 landsliði kvenna. Mun
Auður stýra liðinu á Opna Norðurlandamótinu sem fer fram í
lok júlí í Finnlandi þar sem Jörundur Áki kemst ekki vegna
anna á sama tíma með lið sitt, karlalið Breiðabliks.
|
|
|
28. apríl |
Reykjavíkurmótið
Valur
sigraði Reykjavíkurmótið þar sem það var með besta
markahlutfallið. Valur, KR og Stjarnan voru jöfn stigum
með 6 stig í efsta sæti en Breiðablik rak lestina með 0
stig. Úrslit leikja Stjörnunnar urðu:
Valur
4 - 1 Stjarnan
KR 1 - 3 Stjarnan
Stjarnan 2 - 1 Breiðablik
|
|
|
28. apríl |
Deildarbikarinn
Stjarnan
hefur nú spilað 4 leiki af 5 í B-riðli deildarbikarsins.
Urðu úrslit eftirfarandi:
Stjarnan 3 - 1 Þróttur Reykjavík
Valur 11 - 1 Stjarnan
Stjarnan 8 - 0 RKV
Stjarnan 3 - 2 ÍBV
Næsti leikur er við ÍA 1. maí n.k.
Stjarnan er nokkuð örugglega komin í undanúrslit þar sem
liðið mætir liðinu í fyrsta sæti A-riðils sem er KR.
|
|
|
12. mars |
Kynning á kvennaknattspyrnu
Laugardaginn
16. mars næstkomandi, milli kl. 14:00 og 17:00, verður
haldin kynning á kvennaknattspyrnu í Vetrargarðinum í
Smáralind. Kynningin er framlag Knattspyrnusambands
Íslands til Heilsu– og hvatningardaga er haldnir verða í
Smáralind á vegum ÍSÍ og sérsambandanna um komandi helgi.
Munu leikmenn A-landsliðs kvenna verða þar á staðnum. Sjá
meira á ksi.is
|
|
|
12. mars |
Reykjavíkurmótið Á
morgun, miðvikudaginn 13. mars, er fyrsti leikur
Stjörnunnar í Reykjavíkurmótinu. Mætir Stjarnan þar Val
kl. 20:30 á gervigrasinu í Laugardal en áður munu lið
Breiðabliks og KR mætast kl. 18:30.
|
|
|
10. mars |
Uppfæringar Búið er að setja inn leikjadagskrána fyrir árið 2002 undir
flokknum LIÐIÐ. Einnig tókst að vinna bug á leiðinlegri
villu sem var á síðunni, villu sem varð til þess að
villuskilaboð komu á skjáinn í hvert sinn sem smellt var á
efnisyfirlitið.
|
|
|
23. feb |
Landsliðsæfingar LLandsliðsæfingar kvenna
standa yfir þessa helgi og á Stjarnan þar nokkra fulltrúa.
Hjá U19 eru það Lára
Björg Einarsdóttir og
Guðrún Halla
Finnsdóttir og hjá U17 er það Harpa Þorsteinsdóttir
sem heldur uppi heiðri Stjörnunnar.
|
|
|
23. feb |
Blikar bæta við mannskapinn Blikar hafa á undanförnum dögum fengið liðsauka fyrir
komandi tímabil en það eru þær Elsa Hlín Einarsdóttir
markvörður sem kemur að norðan frá Þór/KA/KS og Elín Anna
Steinarsdóttir sem kemur frá Val
|
|
|
23. feb |
Sigur á móti RKV Leikurinn
í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi endaði 9-2 og fóru
fremstar fyrir liði Stjörnunnar kjúklingarnir Auður Lilja
og Björk. Á morgun verður svo æfingaleikur á móti KR á
gervigrasinu í Laugardal kl. 16
|
|
|
19. feb |
Æfingaleikur!! Jæja þá er komið að öðrum æfingaleik og að
þessu sinni við Reykjanesliði RKV. Leikurinn verður á
föstudagskvöldið í Reykjaneshöllinni.
|
|
|
18. feb |
Stjarnan 0 - 2 ÍBV Í gær fór fram æfingaleikur við ÍBV í
Garðabænum á mölinni en við allt aðrar aðstæður
en á laugardag. Á vellinum var 5 cm snjóþekja og
mikil snjókoma til að byrja með. En leikurinn var
spilaður og endaði hann 0-2 eins og áður kom fram.
Stjörnustúlkur voru velspilandi og voru á köflum
óheppnar að setja boltan ekki innfyrir marklínu.
|
|
|
17. feb |
Elfa Björk til USA
Í dag fer
Elfa Björk til Bandaríkjanna að kíkja á skóla en
hún stefnir á að fara utan til náms í haust. Hún
verður þar í viku og á þeim tíma ætlar hún að skoða
3 skóla, einn í Tennesee, annan í Louisiana og þriðja í
Alabama. Við óskum henni góðrar ferðar :)
|
|
|
16. feb |
Æfingaleikur
Á morgun 17. febrúar er
æfingaleikur við ÍBV á mölinni. Leikurinn hefst
klukkan 12 og verður það eflaust æsispennandi og
skemmtileg viðureign. Áfram Stjarnan!!
|
|
|
16. feb |
Stjarnan 2 - 2 Valur
Í dag var æfingaleikur
við Val sem fór fram í blíðskaparveðri á mölinni í Garðabæ.
Leiknum endaði með jafntefli 2 - 2, það voru Elfa Björk
og Guðrún Halla skoruðu mörkin.
|
|
|
15. feb |
Síðan lifnar við öðru sinni!!
Endurlífganir standa yfir
á þessari síðu, nýr vefstjóri tekin við og ég
ætla nú að taka það í mínar hendur að uppfæra
hérna á fréttahorninu ef.. ja eða þegar eitthvað
gerist fréttnæmt.
|
|
|
2. jan |
Íslandsmót innanhúss 2002
Íslandsmótið innanhúss verður haldið dagana 12. og 13.
janúar í íþróttahúsinu að Austurbergi og í Smáranum.
Leikir
Stjörnunnar lau. 12. janúar í Austurbergi:
14:13 | Stjarnan - Grótta
14:59 | FH - Stjarnan
15:45 | Stjarnan - Valur
16:54 | ÍBV - Stjarnan
Efstu
tvö liðin úr riðlinum komast í undanúrslit sem verða
haldin í Smáranum sun. 13. janúar.
|
|
|
2. jan |
Deildarbikarinn 2002Búið
er að setja drögin að deildarbikarnum inn á
síðu KSÍ.
Leikir Stjörnunnar eru
eftirfarandi:
mið. 20. mars kl. 20 | Stjarnan - Þróttur R. | Gervigrasið
Laugardal
fim. 4 apríl kl. 21 | Valur - Stjarnan | Reykjaneshöllin
mán. 15. apríl kl. 21 | Stjarnan - RKV | Reykjaneshöllin
lau. 27. apríl kl. 14 | Stjarnan - ÍBV | Gerivigrasið
Laugardal
þri. 30. apríl kl. 16 | ÍA - Stjarnan | Ásvellir
|
|
|
22. okt |
Grein úr Garðapóstinum
Vegna hins stórgóða árangurs
Lilju Kjalarsdóttur á
Íslandsmótinu í Fitness var ákveðið að færa hér inn grein sem birtist um
Lilju í Garðapóstinum fyrir nokkrum dögum um undirbúning hennar fyrir
keppnina og eru þar einnig nokkrar myndir af henni þar sem sést í hversu
góðu formi hún er. En hérna er
blaðagreinin. |
|
|
21. okt |
Lilja í 2. sæti!!
Lilja Kjalarsdóttir varð í gær í 2. sæti á
Íslandsmótinu í Fitness en þetta hafði
kraftsport.is
um hana að segja: ,,Í öðru sæti var
Lilja Kjalarsdóttir. Miðað við hennar fyrsta
mót er hér um ótrúlegan árangur að ræða. Hún var 4. í samanburði og
önnur í hraðaþraut sem dugði henni í annað sætið". En við þetta má bæta
að hún hafði aðeins æft í tvo mánuði fyrir þetta mót!
Sérstaklega glæsilegur árangur hjá
Stjörnustelpunni okkar!! :) |
|
|
13. ágúst |
Þorgrímur í Pennanum
Fyrsti Penninn okkar hefur nú litið ljós, en það
er enginn annar en ástsælasti barnabókahöfundur Íslands, Þorgrímur
Þráinsson, anti-reykingarmaður með meiru. Hefur hann skrifað
bráðskemmtilegan pistil hér á síðuna sem þið getið séð með því að smella
hér eða smellt á
Skrif-Penninn. |
|
|
|
|
|