|
Leikur Þórs/KA/KS og Stjörnunnar fór fram í
blíðskaparveðri á Akureyri á
sunnudag. Stjörnustelpur sýndu strax að þær væru sterkari en
andstæðingurinn og fór fyrri hálfleikurinn að mestu leyti fram á
vallarhelmingi norðanstúlkna. Stjörnustelpum tókst þó ekki að skapa sér
mörg hættuleg færi framan af og það voru Þórs/KA/KS stúlkur sem áttu
fyrsta dauðafærið í leiknum eftir misheppnaða "sendingu" Auðar. Maríu
tókst þó að bjarga því og Stjörnustelpur áttu ágæt færi eftir það. Þegar
um 35 mínútur voru liðnar af leiknum komst Lilja í dauðafæri en brotið var
á henni og vítaspyrna dæmd. Steinunn Harpa skoraði af miklu öryggi úr
spyrnunni en hún á hrós skilið fyrir frábær horn og aukaspyrnur í leiknum.
Stjörnustúlkur héldu áfram að sækja eftir markið en undir lok hálfleiksins
náðu norðanstúlkur, sem eru ekki þekktar fyrir að gefast upp, boltanum á
miðjunni og komu honum fram þar sem tveir samherjar biðu. Eitthvað voru
Stjörnukonur orðnar ákafar í sókninni þegar hér var komið sögu því Auður
var þá ein eftir í vörninni og Þórs/KA/KS stúlkur spiluðu sig framhjá
henni og jöfnuðu leikinn gegn gangi hans. Staðann í hálfleik var því 1 -
1.
Stjörnukonur mættu ákveðnar í síðari hálfleikinn og fljótlega kom Elfa
þeim yfir með skallamarki eftir góða aukaspyrnu frá Steinunni. Stjarnan
hélt áfram að sækja og eftir miðjan hálfleikinn bætti Lilja þriðja markinu
við. Þegar stutt var til leiksloka skorðu Stjörnustelpur fjórða markið en
það var dæmt af. Stelpurnar voru auðvitað ekki sáttar við þann dóm og
æsingurinn það mikill að Þórs/KA/KS þjálfaranum blöskraði svo að hann sá
sig tilneyddan að segja ákveðnum "kerlingum að þegja". En auðvitað þýðir
ekkert að deila við dómarann og niðurstaðan því 1 - 3 sigur Stjörnunnar
sem hefði þó auðveldlega getað verið stærri.
Það var fremur barátta en gæðaknattspyrna sem einkenndi þennan leik.
Ágætis spil sást þó á köflum og gaman var að sjá hvað Steinunn getur
skapað mikla hættu með hornum og aukaspyrnum - þetta ættu Stjörnustelpur
að geta fært sér meira í nyt. Greinilegt var að stelpurnar voru komnar upp
á tærnar eftir KR leikinn og allt annar karakter í liðinu núna. Allir
leikmenn virtust tilbúnir að berjast og að því leytinu til að gera sitt
besta þó að sumar eigi enn meira inni. Hanna, Steinunn, Lovísa, Lilja og
Elfa áttu allar mjög góðan leik að öðrum ólöstuðum.
ÁFRAM SVONA STJARNAN |