En hvað kom
til að hún skellti sér í líkamsræktina? ,,Það er búið að vera að þrýsta
á mig undanfarin ár að taka þátt í Galaxy fitnesskeppninni og nú var
einfaldlega komið að því að láta slag standa. Ég hef fylgst með
keppninni undanfarin ár og verið dálítið spennt fyrir þátttöku.. Þetta
er ákveðin áskorun og ég ákvað að taka henni."
Þú tókst þátt í undankeppni
sem fram fór um síðustu helgi þar sem 22 stúlkur tóku þátt í
armbeygjukeppni til að tryggja sig inn í úrslitin. Kom þér á óvart hvað
þér gekk vel miðað við að þú sért nýliði? ,,Nei, ég er búin að æfa vel
og vissi alveg hvað ég gæti. Ég var að taka 40 armbeygjur á æfingum
fyrir keppnina og ég var búin að fá upplýsingar um að það mundi duga mér
í undankeppninni, sem það gerði." Hvernig er fyrirkomulagið í keppninni
sjálfri um helgina? ,,Keppnisfyrirkomulagið er í raun þrískipt. Fyrst er
keppt í armbeygjum og gilda þá ekki úrslitin frá síðustu helgi.
Síðan er farið í tímabraut þar sem farið er í gegnum ýmsar þrautir á sem
skemmstum tíma og að lokum er samanburður."
Hvernig hefur þú hagað
undirbúningnum fyrir keppnina? ,,Ég hef æft tvisvar á dag alla virka
daga, einu sinni á laugardögum og svo tek ég mér frí á sunnudögum. Á
virkum dögum æfi ég fyrst á morgnana þar sem ég einbeiti mér að
brennslunni með því að hlaupa, þannig sker ég mig niður. Á kvöldin lyfti
ég til að auka styrkinn. Þetta er dálítið vandmeðfarið því það getur
verið erfitt að skera sig niður, minnka fituprósentuna, en jafnframt að
bæta við sig styrk. En þetta hefur gengið vel og á Svavar
einkaþjálfarinn minn í Betrunarhúsinu mikið hrós skilið en ég hef
algjörlega farið eftir honum og m.a. lést um 6 kíló á þessu tímabili og
farið úr 17% fitu í 8%. Hann hefur því stutt vel við bakið á mér og ég
hefði aldrei getað þetta án hans."
Þú ert að æfa 11 sinnum í
viku. Ertu ekkert orðin leið á því? ,,Jú, það kemur fyrir og stundum er
ég komin með algjört ógeð. En þetta er í raun orðin einhverskonar
þráhyggja, ég get ekki slepp æfingu þótt mig langi stundum til þess. Ég
verð bara að mæta í Betrunarhúsið og æfa."
Nú hlýtur mataræðið að
skipta miklu máli? ,,Já, það skiptir rosalega miklu máli. Ég reyni að
borða minnst sex sinnum á dag og með reglulegu millibili. Það mega helst
ekki líða meira en tveir til þrír tímar á milli mála. Ég hef eingöngu
borðað kjúklingabringur, fisk, próteindrykki, hrísgrjón, grænmeti og
eggjahvítur síðustu tvo mánuði nema á laugardögum, en þá er nammidagur
og ég get leyft mér að borða hvað sem ég vil. Ég nýti þennan dag vel og
borða ýmislegt sætt og vel fitandi, en það er nauðsynlegt að gera þetta
annars gæti maður aldrei farið í gegnum þennan matarkúr alla daga."
Nú sástu keppinauta þína í
undankeppninni. Hvernig metur þú möguleika þína á mótinu eftir að hafa
séð þá? ,,Ég er full sjálfstrausts og ætla að reyna að gera mitt besta.
Það er alltaf erfitt fyrir nýliða að koma inn þar sem þeir hafa aldrei
farið í gegnum tímabrautina, en hún reynist mörgum erfið þar sem maður
er ekki öruggur með hvernig eigi að bregðast við mismunandi þrautum í
brautinni. Það er ekki til nein æfingabraut þannig að maður þekkir
ekkert inn á hana. Reynslan er því ekki til staðar en ég ætla samt að
koma á óvart og láta reynsluboltana hafa fyrir mér."